Helga Rós Indriđadóttir
Helga Rós Indriđadóttir sópransöngkona stundađi nám viđ Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk ţađan tónmenntakennaraprófi 1992 og söngkennara- og einsöngvaraprófi áriđ 1996. Sama ár hóf hún nám viđ Staatliche Hochschule fuer Musik und Darstellende Kunst í Stuttgart. Ţar stundađi hún nám viđ ljóđadeild skólans og lauk áriđ 1999 mastersprófi frá óperudeildinni. Fyrsta einsöngshlutverk Helgu Rósar var Poppea í Krýningu Poppeu eftir Monteverdi sem sett var upp í Wilhelma-Theater, leikhúsi óperuskólans. Á međan hún var enn viđ nám var hún fastráđin viđ Óperuhúsiđ í Stuttgart (Staatsoper Stuttgart) og debúterađi sem Freyja í Rínargulli Wagners.
Helga Rós var fastráđin viđ óperuna í Stuttgart í 8 ár og söng fjölda hlutverka m.a. Evridísi í Orfeo eftir Monteverdi, Antoníu í Ćvintýrum Hoffmanns, Zerlinu í Don Giovanni, Ortlinde í Valkyrjunum, Woglinde í Ragnarökum og Florice í frumflutningi á Pastorale eftir Gerard Pesson. Auk ţess var hún gestasöngvari í óperuhúsunum í Bonn, Wiesbaden og Karlsruhe. Í DVD útgáfu af aldamótauppsetningu Niflungahrings Wagners frá óperunni í Stuttgart er Helga Rós í hlutverki Freyju í Rínargullinu og Woglinde í Ragnarökum. Hún hefur starfađ međ hljómsveitarstjórunum Lothar Zagrosek, Janos Kulka, Raymond Leppard, Jean-Claude Malgoire, Enrique Mazzola, Kwamé Ryan, Nicola Luisotti, Roland Kluttig, Nicolas Kok, Alessandro de Marchi og leikstjórunum Peter Konwitschny, Hans Neuenfels, Christof Nel, Nicolas Brieger, Martin Kusej, Jossi Wieler og Joachim Schlömer
Helga Rós hefur sungiđ Sálumessur Mozarts og Verdis, Sköpunina, Árstíđirnar og Teresíumessu Haydns, Elías og Paulus eftir Mendelssohn, Saul eftir Haendel, Missa Solemnis og 9. sinfóníu Beethovens, Le Laudi eftir Hermann Suter, Orfeo eftir Pergolesi og Les Illumination eftir Britten.
Hún hefur einnig sungiđ fjölda ljóđatónleika bćđi hér heima og erlendis međ píanóleikurunum Gerrit Schuil, Önnu Guđnýju Guđmundsdóttur, Frédéric Sommer, Elisabeth Föll, Robin Engelen, Peter Schrottner og Trio Parnassus. Ţar á međal voru Tíbrár tónleikar í janúar 2004. Hún hefur sungiđ lög eftir íslensk tónskáld, Beethoven, Schubert, Schumann, Brahms, Wolf, V. Ullmann, Schönberg, Grieg, Sibelius, Liszt, Debussy og Britten. Samstarfiđ viđ Guđrúnu Dalíu Salómonsdóttur píanóleikara hófst í Stuttgart en ţćr flytja saman Sönglög Jórunnar Viđar.
