Fréttir

Fréttasafn Salarins

Kanadísk menningarhátíð í Kópavogi
Frumbyggjalist nútímans í dansi, leik, tónum og myndum,
málþing, kvikmyndir, stefnumót við rithöfund og fleira.

Kópavogsbær stendur fyrir Kanadískri menningarhátíð dagana 14.-22. október í samvinnu við lista- og menningarstofnanir í Kópavogi, sendiráð Kanada á Íslandi og fleiri samstarfsaðila. Dagskrá hátíðarinnar er vönduð og spennandi og verður sjónum m.a. beint að menningu frumbyggja í nútímanum; indíána og inúíta. Listamenn í fremstu röð koma fram á tónleikum, dans- og leiksýningum í Salnum. Þrjár myndlistarsýningar verða í Gerðarsafni. Bókasafn Kópavogs kynnir kanadískar bókmenntir og sýndar verða kanadískar kvikmyndir. Kanadísk frumbyggja- og landnemamenning verður rædd á málþingi og stefnumót verður við rithöfund í Salnum, auk þess sem slegið verður upp líflegri fjölskylduhátíð í Vetrargarðinum í Smáralind.

Þrjár myndlistarsýningar frumbyggja nútímans í Gerðarsafni
Kanadísk menningarhátíð hefst laugardaginn 14. október með því að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar þrjár sýningar í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni, þar sem teflt er saman list kanadísku frumbyggjanna, indíána og inúíta, og hinni vestrænu hefð. Verkin á sýningu Carls Beam eru unnin með blandaðri tækni upp úr ljósmyndum, ljósmyndarinn Myron Zabol sýnir sviðsettar portrettmyndir af írókesaindíánum og á þriðju sýningunni gefur að líta þrívíð verk inúíta í Kanada úr beini, rostungstönn og ýmsum steintegundum sem sýna dýr, menn og furðuverur. Sýningarnar verða opnaðar almenningi sunnudaginn 15. október kl. 11.

Tónleikar á heimsmælikvarða í Salnum
Fjölbreytt tónlistardagskrá verður í Salnum á hátíðinni. Hinn heimskunni píanóleikari Angela Hewitt leikur verk eftir Bach, Beethoven, Rameau og Chabrier á tvennum tónleikum (tvær efnisskrár) mánudaginn 16. og þriðjudaginn 17. október kl. 20. Red Sky er margverðlaunaður fjöllistahópur sem flytur ævintýri úr sagnaheimi Cree-indíána í dansi, leik og tónum og barkasöngvararnir Tracy Brown og Kendra Tagoona munu miðla menningu inúíta í fortíð og nútíð með barkasöng og trommudansi. Red Sky og barkasöngvararnir koma fram í Salnum miðvikudaginn 18. október kl. 20. Auk þess skemmta þau grunnskólabörnum í Kópavogi á skólatónleikum í Salnum undir merkjum Tónlistar fyrir alla og taka þátt í fjölskylduhátíð í Vetrargarðinum. Óperuprímadonnan Mary Lou Fallis og meðleikari hennar, Peter Tiefenbach, snúa aftur með nýja og bráðskemmtilega dagskrá (föstudaginn 20. október kl. 20) en heimsókn þeirra í Salinn vorið 2005 var ógleymanleg öllum viðstöddum. Miðasala á viðburði Kanadískrar menningarhátíðar í Salnum hefst mánudaginn 2. október á
www.salurinn.is og í síma 5 700 400.

Kvikmyndasýningar og bókmenntir í Bókasafni Kópavogs
Kanadískar kvikmyndir og bókmenntir verða í brennidepli í Bókasafni Kópavogs meðan á Kanadískri menningarhátíð stendur. Á öllum hæðum safnsins verður lögð áhersla á kanadískt efni til sýnis og útláns. Í Listvangi á þriðju hæð verður spiluð tónlist, í barnadeild uppstilling á barnabókum, á annarri hæð eru skáldsögur og ævisögur og í Kórnum, sýningarsal á fyrstu hæð safnsins, verða sýndar kanadískar kvikmyndir alla daga hátíðarinnar. Í Lindasafni verður ennfremur brúðuleikhús Helgu Arnalds um Leif heppna. Rithöfundurinn Michael Ondaatje mun skipa heiðurssess í Bókasafninu og verður bókum hans stillt sérstaklega upp.

Málþing um kanadíska frumbyggja- og landnemamenningu
Áhugasömum um kanadíska menningu er boðið á málþing með yfirskriftinni Kanadísk frumbyggja- og landnemamenning laugardaginn 21. október kl. 10-13 í Salnum. Ljósi verður varpað á menningu frumbyggja og landnema í Kanada og samskipti þeirra í fjölda áhugaverðra erinda. Málþingið fer fram á íslensku og eru allir velkomnir en tilkynna þarf þátttöku á
salurinn@salurinn.is eða í síma 5 700 400. Málþingið er haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna.

Kanadísk fjölskylduhátíð í Vetrargarðinum
Undir lok hátíðarinnar verður haldin kanadísk fjölskylduhátíð í Vetrargarðinum í Smáralind laugardaginn 21. október. Dagskráin hefst kl. 13, er fjölbreytt og við hæfi allrar fjölskyldunnar. Red Sky og barkasöngvararnir Tracy Brown og Kendra Tagoona  bregða á leik, Skólahljómsveit Kópavogs, Kór Snælandsskóla og Skólakór Kársness leika og syngja og fjölmörg önnur skemmtileg atriði verða í boði fyrir alla fjölskylduna.

Stefnumót við rithöfundinn Michael Ondaatje
Kanadískri menningarhátíð lýkur með stefnumóti við rithöfundinn Michael Ondaatje en þekktast verka hans er skáldsagan The English Patient sem seinna var kvikmynduð og vann til fjölda Óskarsverðlauna. Ljósi verður brugðið á höfundarverk hans í spjalli hans og Gunnþórunnar Guðmundsdóttur, bókmenntafræðings og aðjunkts við Háskóla Íslands, sem m.a. hefur sérhæft sig í verkum Ondaatjes. Stefnumótið verður í Salnum sunnudaginn 22. október kl. 13. Dagskráin fer fram á ensku og eru allir velkomnir.

The English Patient sýnd í Salnum
Kvikmyndin The English Patient eftir Anthony Minghella, gerð eftir skáldsögu Michael Ondaatje, verður sýnd í Salnum sunnudaginn 22. október kl. 14:15, í beinu framhaldi af stefnumóti við rithöfundinn. Michael Ondaatje flytur stutt ávarp áður en sýning myndarinnar hefst. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar um Kanadíska menningarhátíð er að finna á vefsvæði Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is.

ENGLISH

Indigenous culture rubs shoulders with the classics in Kópavogur’s Canadian Cultural Festival
Modern and contemporary aboriginal culture in dance, acting, music and visual arts; a seminar, films, a rendezvous with a writer and more

Kópavogur will be the venue for a Canadian Cultural Festival from 14th to 22nd October this year, hosted by the Town of Kópavogur in collaboration with the town’s cultural institutions, the Canadian Embassy and other parties. The varied and high-quality programme of events will include a special focus on Canadian indigenous art by the First Nations and Inuit populations. Artists of the first rank in various media will be making appearances in concerts, dances, theatrical presentations in the Salurinn auditorium. The Art Museum, Gerðarsafn, will be housing three exhibitions; the Kópavogur Library will be promoting Canadian literature and there will be screenings of Canadian films. The cultures of the aboriginal and pioneer populations of Canada will be discussed at a seminar and a lively festival programme for the whole family will be presented in the Winter Garden in Smáralind.

Three indigenous art exhibitions in Gerðarsafn
The Canadian Cultural Festival will begin when the President of Iceland, Ólafur Ragnar Grímsson, opens three exhibitions in the Kópavogur Art Gallery, Gerðarsafn on Saturday 14th October. These will comprise modern and contemporary art of the indigenous First Nations and Inuits in Canada: Carl Beam’s works draw material from photographs, employing a variety of media; photographic portraits by Myron Zabol feature posed pictures of Iroquois and the third exhibition will be devoted to three-dimensional art from Canada showing animals, men and supernatural beings sculpted in bone, walrus ivory and stone. The exhibitions will be open for the public from Sunday 15th October at 11 a.m.

Concerts on an international level at Salurinn
There will be a varied selection of live music at Salurinn, Kópavogur’s Concert Hall. The world-renowned pianist Angela Hewitt will be giving two recitals (with different programmes) of works by Bach, Beethoven, Rameau and Chabrier (Monday 16th and Tuesday 17th October at 8 p.m.). Red Sky, a group that has won many awards, will be interpreting Cree folktales in music, dance and action, joining the duo Sunsdrum in a presentation of Inuit culture, past and present, with throatsinging, drumming and dance. Red Sky and Sunsdrum will be giving a performance in Salurinn Wednesday 18th October and also performing for junior school children in Kópavogur in the “Music for All” concert series and taking part in the family festival in the Winter Garden in Smáralind (Saturday 21st October). Finally, the operatic prima donna Mary Lou Fallis and her accompanist, Peter Tiefenbach, are returning to Iceland with an amusing programme (Friday 20th October at 8 p.m.); their last visit, in spring 2005, was an unforgettable experience. Ticket sales for events in the Canadian Cultural Festival in Salurinn open on Monday, 2nd October, on the website
www.salurinn.is.

Films and literature in the Kópavogur Library
Canadian cinema and literature will be in the limelight in the Kópavogur Public Library during the cultural festival. The emphasis will be on things Canadian on all floors, either for viewing only or available on loan. Canadian music will be played in the Listvangur area on the third floor and children’s books will be on display in the children’s section; novels and biographies will be featured on the second floor, while Kórinn, the exhibition room on the first floor, will be the venue for showings of Canadian films on each of the festival days. Helga Arnalds’ puppet theatre will be performing a play about Leif the Lucky (Leifur Eiríksson) in Lindasafn. There will be a special display of books by Michael Ondaatje, who is a special guest of the festival (see below).

Seminar on indigenous and pioneer culture in Canada
A special seminar on Indigenous and Pioneer Culture in Canada will take place on Saturday, 21st October from 10.00 a.m. to 1.00 p.m. in Salurinn, focussing on the culture of these two groups and contact between them in a series of interesting presentations. The language of the seminar will be Icelandic.  It is open to all, but those interested in attending must register at
salurinn@salurinn.is.

Canadian Family Festival in the Winter Garden
Towards the end of the festival days, on Saturday 21st October, a Canadian Family Festival will take place in the Winter Garden in the Smáralind Shopping Mall from 1.00 to 3.00 p.m. This will consist of a mixed programme of events suitable for the whole family. The Kópavogur School Orchestra, Snæland School Choir and the Kársnes School Choir will be performing Canadian music, the theatre group Red Sky will be performing and other events for children and the family will be presented.

Rendezvous with the writer Michael Ondaatje
The Canadian Cultural Festival concludes with a rendezvous with the writer Michael Ondaatje, who is best known for his novel The English Patient, which was made into an award winning feature film. The rendezvous, in the form of a conversation with the writer which will focus on his literary career, will be in the hands of Gunnþórunn Guðmundsdóttir, a lecturer in Comparative Literature at the University of Iceland, who has studied Ondaatje’s works. The rendezvous will take place in English in Salurinn on Sunday, 22nd October, starting at 1.00 p.m., and is open to all.

The English Patient in Salurinn
The film The English Patient by Anthony Minghella, based on the novel by Michael Ondaatje, will be shown in Salurinn on Sunday 22nd October at 2.15 p.m., following the “Rendezvous” with the author. Michael Ondaatje will say a few words about the film before the screening, which is open to all.