Miðasala
Sparaðu þér sporin og kauptu miða á netinu
LÖG UNGAFÓLKSINS
SÖNGTÓNLEIKAR Í TÍBRÁ, 25. október 2008 KL. 17:00, Verð: 2.500 kr.
JÓN SVAVAR JÓSEFSSON
ÁSTRÍÐUR ALDA SIGURÐARDÓTTIR
Fyrstu tónleikarinir í tónleikaröðinni LÖG UNGAFÓLKSINS Í TÍBRÁ verða fluttir í Salnum næstkomandi laugardag 25. október og hefjast þeir kl. 17. Það er hinn ungi og bráðefnilegi baritonsöngvari Jón Svavar Jósefsson sem ríður á vaðið og flytur, ásamt stallsystur sinni Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara, glæsilega efnisskrá með söngvum, ballöðum og söguljóðum eftir nokkur af helstu tón- og ljóðskáldum söngbókmenntanna, íslensk og erlend.
Á tónleikunum má meðal annars heyra Sverri konung eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Álfakónginn eftir Schubert auk söngljóða eftir Hugo Wolf, svo hér er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Jón Svavar, sem útskrifaðist frá óperudeild Universität für Musik und darstellende Kunst Wien í júní 2007, hlaut fádæma lof fyrir tónleika sem hann hélt í Salnum í nóvember á síðasta ári. Í umfjöllun um þá tónleika í Morgunblaðinu 15. nóvember 2007, segir Ríkarður Örn Pálsson m.a.:
,, ...sjaldan hefur undirritaður upplifað jafnfjölbreytta og víðfeðma túlkun jafnungs söngdebútants (30), hvort heldur á alþjóðlega kunnum óperuaríum sem íslenzkum gullaldarsönglögum..... Lífleg leikræn sviðsframkoma, inntakshlaðin textatúlkun, víðfeðmt styrkleikasvið og litrík tónbeiting, að ógleymdum tandurskýrum framburði – allt lagðist það á eitt um að tjá öllum nærstöddum með sjötommunöglum að hér voru á ferð hæfileikar sem ættu mikið í vændum með sama framhaldi”.
Áhugafólk um sönglistina ætti því ekki að láta sig vanta á þessa metnaðarfullu tónleika unga fólksins.
Miðaverð: 2500 kr.
Tónleikar í samstarfi við: BM VALLÁ, SKIPTI OG SAMTÖK IÐNAÐARINS
Sími í miðasölu er 5 700 400.
Miðasala Salarins er opin virka daga kl. 10 - 16 og klst. fyrir tónleika.
_______________________________________
Nánar um tónleikana…
EFNISSKRÁ
Sveinbjörn Sveinbjörnsson: Vetur
Víðisöngur
Sverrir konungur
Karl Ottó Runólfsson: Útlaginn
Allar vildu meyjarnar eiga hann
Hirðinginn
Hugo Wolf: Bei einer Trauung
Selbstgeständnis
Abschied
HLÉ
Franz Schubert: Gute Nacht [Úr „Winterreise“]
Auf dem Flusse [Úr „Winterreise“]
Der Leiermann [Úr „Winterreise“]
Erlkönig
Carl Loewe: Tom der Reimer
Edward
UM FLYTJENDUR:
Jón Svavar Jósefsson fæddist á Akureyri í júlí 1977. Hann útskrifaðist með burtfararprófi frá Tónlistarskóla Garðabæjar undir leiðsögn Snæbjargar Snæbjarnardóttur 2003. Hélt þaðan til Vínarborgar og nam söng í einkakennslu hjá Frau Helene Karusso og svo hjá Prófessor Ralf Döring sem varð aðal söngkennari Jóns er hann hlaut inngöngu í óperudeild Universität für Musik und darstellende Kunst Wien 2005, en þaðan útskrifaðist Jón í júní 2007. Jón hefur sótt fjölda námskeiða í söng og sviðslistum á Íslandi, Belgíu og Austurríki og hefur haldið marga einsöngstónleika á Íslandi og sungið víða. Ásamt söngnum starfar Jón Svavar að hluta sem járningamaður hrossa og hefur líklega sungið í flestum hesthúsahverfum landsins. Í nóvember 2007 hélt Jón Svavar einsöngstónleikana "Ókyrrð í Salnum" í Salnum Kópavogi ásamt Guðrúnu Dalíu Salómonsdóttur píanóleikara.
Ástríður Alda Sigurðardóttir hóf nám í píanóleik 6 ára gömul hjá móður sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Vorið 1999 lauk hún einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Á árunum 2000-2003 stundaði hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University - Jacobs School of Music í Bloomington þar sem hún lauk Artist Diploma með hæstu einkunn. Ástríður hefur sótt fjöldann allan af námskeiðum, og tímum í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler. Við Indiana University naut hún styrkja frá skólanum en einnig hefur hún tvívegis fengið styrk úr minningarsjóði Birgis Einarssonar auk hvatningarstyrks frá Hafnarfjarðarbæ. Ástríður hefur komið víða fram á tónleikum, ýmist sem einleikari eða með öðrum tónlistarmönnum, þar á meðal á Listahátíð í Reykjavík. Þá hefur hún komið fram sem einleikari með Internationales Jugendsinfonie-orchester Elbe-Weser í Þýskalandi, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Ástríður er meðlimur í kammerhópnum Electra Ensemble og tangósveitinni Fimm í tangó sem sérhæfir sig í finnskri tangótónlist. Á síðasta ári kom út geisladiskurinn Aldarblik með Ástríði og söngvurunum Eyjólfi Eyjólfsyni og Ágústi Ólafssyni.
